Thursday, August 28, 2003

Það fer nú að verða hálftómt hérna megin veggsins í salnum, allar að færa sig yfir.....snöktsnökt, en sem betur fer hef ég allavega ennþá hana Huldu mína, má náttúrulega þakka fyrir það! Hvað er maður samt að spá? Af hverju er ég ekki LÖNGU hætt hérna?
Ég held að það sé einhver ofur-kvíði fyrir að fara í atvinnuviðtöl.....er ég orðin algjör aumingi...kræst!!! All talk, no action....það er ég í hnotskurn. Sad but true ;o(

Ég var nánast búin að gleyma að blogga.....og ég sem ætlaði að vera svooo dugleg við þetta! Ég fór til Thelmu vinkonu í gærkvöldi, spilakvöld. Við spiluðum Monopoly og hún gjörsamlega rústaði mér, átti eftir tæpar 400 þús kall í peningum og nánast allar eignirnar.....asskotinn! Svo fórum við í Scrabble og urðum hárjafnar. Þetta var greinilega ekki kvöldið mitt.

Friday, August 22, 2003

Grasekkja

Jæja, mín orðin grasekkja (nýbúin að læra þetta orð....ég veit að ég er að verða þrítug, en þarf maður að vera alvitur fyrir það????) og verð næstu 3 vikurnar. Vojkan minn fór heim til sín til Serbíu í morgun. Ég ætla þvílíkt að njóta þess að vera ein og dunda mér við eitthvað skemmtilegt þó auðvitað eigi ég eftir að sakna hans snúlla míns ;o)

Tuesday, August 19, 2003

Jæja, ég var að koma frá tannsa.....er öll bólgin og aflöguð. Tannlæknirinn var að deyfa mig og hitti víst á einhverja æð í kinninni sem gerði það að verkum að það bolgnaði einhver gúlpur og hræðileg afleiðing af þessu er að ég fæ víst marblett dauðans á KINNINA......smekklegt! Það er eins gott að það sé ekkiert merkilegt á stefnuskránni hjá mér á næstunni ;o)

GEITUNGAR

Ég er alveg að fá nóg af þessum ógeðum. Maður er hvergi óhultur. Við Hulda fórum í pásu áðan, vorum nýbúnar að stíga fæti inná kafistofu þegar einn brjálæðingur kom á móti okkur. Við hentumst fram til að sækja Bana 1, Hulda fer aftur inn og sprautar á fullu, en þá vorum allt í einu komnir tveir!! Þeir enduðu í glugganum þar sem við sáum tvo í viðbót.......HALLÓ, hvernig í ósköpunum á maður að geta drukkið kaffið sitt í rólegheitunum þarna inni.....no way!!!!
En þetta er ekki allt. Þeir eru líka heima hjá mér. Það er bú ekki langt frá svalahurðinni hjá mér sem er útaf svefnherberginu. Ég er búin að fá geitungabana heim til að stúta þeim og hann er búinn að koma 3x og enn er það ekki að virka.......kræst ! ! ! Hvar endar þetta?????????

Gooood morning Iceland!!!!!

Þá hefst dagur nr. 2 í blogginu. Það versta er að ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að skrifa, hversu 'personal' á maður að verða?? Jæja, það kemur bara í ljós hvort ég úthelli öllum mínum leyndarmálum hérna eða haldi áfram að vera dul á allt mitt ;o)

Hef a næs dei evrívon!

Monday, August 18, 2003

Er heilbrigt að vera svona flottur.....arrrg!!!



Jæja, nú er audi komin í bloggið.....langaði að vera með í leiknum, var orðin svoooo útundan!!!
Well.....let's give it a try;o)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?